Ríki er yfirflokkur vísindalegra flokka sem notaðir eru til að flokka
lífverur. Ríki eru sums staðar notuð sem yfirflokkur fyrir annað en
lífverur vegna hliðstæðu milli flokkunarkerfa. Sem dæmi má nefna
veiruríkið (veirur eru ekki lífverur en flokkaðar á svipaðan hátt) og
steinaríkið. Ríkin eru efsti (eða næstefsti) flokkurinn í
flokkunarfræðinni.
Í bók sinni Systema naturae sem kom út árið 1735 gerði Carl von Linné
greinarmun á tveimur ríkjum lifandi vera, dýraríkinu og
jurtaríkinu. Hann fjallaði raunar líka um steindir og setti þær í
sérstakt steinaríki (Mineralia). Linné skipti hverju ríki í flokka sem
síðar urðu að fylkingum hjá dýrum og skiptingum hjá jurtum.
1940 - Áfengisskömmtun var tekin upp á Íslandi og var skammtur
karlmanns 4 hálfflöskur á mánuði af sterkum drykkjum en kvenna
helmingur þess.
2010 - Héðinsfjarðargöng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar annars
vegar og Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar hins vegar vígð.
Á öðrum tungumálum  Margar aðrar Wikipediur eru tiltækar, þær stærstu
eru hér fyrir neðan:
Þessari síðu var síðast breytt 26. apríl 2011 klukkan 09:45.
Hér geta allir lagt sitt af mörkum til þess að byggja upp ítarlegt
alfræðirit á íslensku.

